26. ágúst 2006 klukkan 14:11
Það skemmtilegasta við Kárahnjúka eru tvímannalaust helgarnar! Svo fjölbreytilegar og viðburðaríkar..
Reyndar er ég rosalega spennt núna því á morgunn er lokadagurinn í svokölluðu "Ormsteiti" og þá verða smá tónleikar hérna í Skriðuklaustri. Glöggir lesendur fatta líklegast að ég get farið í Skriðuklaustur og þess vegna mun ég fara á tónleika á morgun með stúlkna hljómsveit sem heitir Without balls og hljómsveitinni
Hjálmar. Skemmtileg tilbreyting það

Ormsteiti er margra daga hátíð hérna í og við Egilsstaði sem er haldin til heiðurs lagafljótsorminum. Á fyrsta deginum vakna allir krakkar bæjarins mjög snemma og fara niður að lagafljótinu með potta, trommur o.þ.h. og reyna að vekja orminn. Vanalega tekst það ekki og þess vegna búa þau til gerviorm, ganga með hann um bæjinn og vekja bæjarbúana. Síðan eru hátíðarhöld í 10 daga held ég og síðasti dagurinn er sem sagt á morgun.
Annað gleðiefni í tilverunni minni er að ég fer heim ekki á morgun heldur hinn og til Kaupmannahafnar daginn eftir það. Þar mun vera slappað af og verslað. Þess vegna mun lítið sjást til Önnu næstu vikurnar...
A
23. ágúst 2006 klukkan 23:23
...hef komist að því að ég er ekki mikill penni... en annars allt gott að frétta héðan. Það er bara alveg ágætt að vera hérna í sólinni.
A
11. ágúst 2006 klukkan 22:33
Karen, Jonni og Haukur fóru í gær þannig að ég er orðin ein aftur... ég sakna þeirra strax. En það er í góðu lagi því ég fer heim á morgun :) verð heima í 6 daga og er að vinna 5 daga... en svo fer þetta nú að róast eftir sumarið.
A
08. ágúst 2006 klukkan 22:29
...er búið að vera alveg rosalega fínt síðast liðna daga. Karen, Jonni og Haukur komu á sunnudagskvöldið og eru enn hjá mér. Það er yndislegt að hafa þau hjá mér. Þau eru búin að vera að skoða hérna allt í kring og hanga með mér þess á milli. Haukur kom meira að segja með mér á vaktina á mánudagsmorguninn þar sem ég ætlaði að leyfa mömmu hans og pabba að sofa aðeins út. En þegar komnir voru tveir á vaktina og Haukur byrjaði að gelta og skríða út um alla stofuna eins og hundur þá neyddist ég til þess að skila honum argandi af mér, honum til mikilla ama. Í gær komu svo elsku Hildur mín og Binni í stutta heimsókn, þau eru hérna í Atlavík. Virkilega gaman að hitta þau!
Ég er loksins búin að kíkja í Skriðuklaustur sem er hérna rétt hjá og er einn fárra staða sem ég get farið á þegar ég er að vinna. Ég er aðeins um 3 mínútur að keyra þangað þannig að það fellur innan 5 mínútna rammans
Þetta er menningarsetur sem Gunnar Gunnarson skáld byggði og bjó þarna. Þetta er rosalega fallegt hús sem kostaði tíu sinnum meira að byggja en hús í Reykjavík fyrir rúmum 70 árum.

Svo er svo rosalega fínt að þarna er æðislegt hádegis- og kaffihlaðborð.
A
05. ágúst 2006 klukkan 22:35
Rosalega getur orðið gott veður hérna! í dag er aftur yfir 20 stiga hiti í forsælu og sólskyn... reyndar smá vindur en hann er hlýr.
Héðan er svosem ekki mikið að frétta, það er allaveganna stórslysalaust sem betur fer. Það eru þvílíkar ráðstafanir samt vegna mótmælendanna og núna eru verðir á svæðinu allan sólahringinn. Mér finnst það rosalega fínt því þeir sitja í bíl rétt hjá húsinu mínu og mér finnst það mikið öryggi (hafa það samt á hreinu að ég er ekki hrædd við mótmælendurna). Inná milli eru svo nokkrar löggur hérna líka en þær eru þó meira uppá mótmælendasvæðinu hjá mótmælendagreyjunum sem ég er ansi hrædd um að nái ekki að stöðva framkvæmdirnar upp úr þessu... þeir eru kannski aaaðeins of seinir?
Ég er svo ótrúlega ánægð með það að systir mín, mágur og litli frændi ætla að kíkja á mig á morgun að þið trúið því ekki. Þau voru svo "óheppin" að vera í Ásbyrgi þegar Sigur Rós var þar... hefði verið til í það líka.
Sakna ykkar elskunar mínar!
A
03. ágúst 2006 klukkan 22:13
.... þetta er staðurinn til þess að vera á í dag!
Hérna er skínandi sól og 21 stiga hiti í forsælu og Sigur Rós er að fara að spila hérna uppi á fjallinu....það er reyndar ekki svo æðislegt fyrir mig því ég get náttúrulega ekki farið héðan af svæðinu frekar en fyrri daginn.
Í pásunni frá Hnjúkunum var ég að vinna næstum því hvern einasta dag á bráðamóttökunni og ég verð að játa að ég var orðin ansi þreytt. Það bætti ekki ástandið þegar ég var að drífa mig í vinnuna síðasta mánudag og var alveg að verða of sein og ég náði að bomsa aftan á bíl

Einhver sniðugur hringdi í neyðarlínuna og tilkynnti slysið því áður en við vissum af (þ.e. ég og strákurinn sem ég keyrði á) komu tveir sjúkrabílar, slökkviliðsbíll, stór löggubíll og tvær mótorhjóla löggur. Ég krossaði fingur og vonaði að ég myndi ekki þekkja neinn. Ég meiddist ekkert svo að ég bara dreyf mig í vinnuna en ég sá fljótlega eftir því... ég gerði mér ekki grein fyrir því að maður verður alveg rosalega eftir sig, andlega, eftir svona vitleysu... aumingja bíllinn minn gamli er því dáinn núna
Sem betur fer fékk ég langt helgarfrí áður en ég kom hingað. Ég og Davíð notuðum því tækifærið og fórum í yndislegt sumarhús á Tálknafirði sem fjölskyldan hans á og þar náðum við sko að hlaða batteríin.
A
03. ágúst 2006 klukkan 17:12
Já það er víst að ég er komin aftur. Mun reyna að blogga ef mér dettur eitthvað í hug að segja... Það er kannski gaman fyrir ykkur að vita að það er sól og blíða hérna fyrir austan...
A
10. júlí 2006 klukkan 18:42
vá hvað ég er ánægð að vera á heimleið! Kem aftur í sveitina í lok júlí/byrjun ágúst..
A
08. júlí 2006 klukkan 13:15
Ég er rosalega hress í dag! 2 dagar þangað til ég kem í stórborgina og mamma, pabbi og Atli minn eru á leiðinni til mín. Vonandi verður rólegt að gera um helgina og enginn æsingur í Símoni...
A
07. júlí 2006 klukkan 20:10
Það var alveg magnað veður hérna í gær! Hitinn fór yfir 23°C hérna á svæðinu, sumir segja að það hafi verið meira en 25°C. Rosalegt, ég hef ekki oft lent í svona góðu veðri á Íslandi. Svo var líka logn, þannig að þetta var æði!
Í dag vakna ég svo við rigningu og það er búið að rigna stanslaust í dag.. ég vona innilega að það rigni bara alveg þangað til á morgun og hætti svo þegar mamma, pabbi og Atli koma.
Svo fékk ég heimsókn í gær frá Iðunni gamalli vinkonu úr sundinu. Hún er að vinna við vegaeftirlit og kíkti við hjá mér. Mikið var nú gaman að fá heimsókn :)
Um kvöldið í gær var svo grill og allir borðuðu úti, bjór og fleira.. það var skemmtilegt. Ég náttúrulega drekk samt ekki bjór hérna...
Í dag er föstudagur og ég sakna hamborgarans...enginn föstudags-hambó hérna.. glatað!
A